Hjúkrunardeildir
Á heimilinu eru þrjár almennar hjúkrunardeildir fyrir 29 einstaklinga hver deild og ein deild fyrir 10 minnissjúka. Laugaskjól er sambýli við Laugarásveg en þar búa 9 manns.
Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólahringinn. Hjúkrunardeildarstjórar eru við milli kl. 8 og 16 virka daga.
Á deildum eru ýmist einbýli eða tvíbýli en markmið okkar er að geta í framtíðinni boðið öllum sem þess óska einbýli.
Áhersla er lögð á hlýlegt og heimilislegt umhverfi á deildum. Setustofur, borðstofur og svalir eru á hverri deild. Hver heimilismaður skapar sitt persónulega umhverfi með eigin munum.


