Læknaþjónusta
Skjól býður upp á þjónustu heimilis- og öldrunarlækna.
Yfirlæknir ber faglega ábyrgð á læknisþjónustu Skjóls. Læknar koma alla morgna á heimilið og sinna ákveðnum fjölda íbúa sem tryggir að hver maður hefur sinn lækni. Læknarnir sinna einnig bakvakt til næsta dags þannig að ávallt er hægt að ná í lækni til samráðs eða vegna bráðra veikinda.
Sérfræðiþjónusta í tannlækningum og augnlækningum er veitt á staðnum. Kvensjúkdómalæknir kemur eftir beiðni. Aðra sérfræðiþjónustu þarf að sækja utan heimilis.
Yfirlæknir er Sigurbjörn Björnsson, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum
Fastráðnir læknar:
Björn Gunnlaugsson heimilislæknir
Haraldur Dungal heimilislæknir
Jón Bjarnarson heimilislæknir


