Sjúkraþjálfun
Markmið sjúkraþjálfunar er að veita íbúum heimilisins einstaklingsmiðaða þjálfun og meðferð til að viðhalda og bæta hreyfigetu og færni, minnka verki, stuðla að vellíðan og létta lund.
Í sjúkraþjálfun Skjóls fer fram sérhæfð hóp- eða stöðvaþjálfun undir umsjón sjúkraþjálfara. Einnig er boðið upp á einstaklingsmeðferð, s.s. verkjameðferð, fyrir þá sem þess þurfa.
Þjálfunin fer aðallega fram í húsakynnum sjúkraþjálfunar en einnig á á deildum.
Sjúkraþjálfarar meta þörf fyrir hjálpartæki og sjá um útvegun þeirra.
Sjúkraþjálfari er Sigrún Guðjónsdóttir sigrun@skjol.is


