Umsóknaferli um hjúkrunarrými
Liggja þarf fyrir gilt vistunarmat um þörf fyrir hjúkrunarrými. Þegar pláss losnar á Skjóli, tilnefnir vistunarmatsnefnd í plássið.
Hjúkrunarforstjóri hefur samband við væntanlega íbúa og/eða aðstandendur og kynnir væntanlegt pláss.
Ákvörðun og innskrift um nýtingu á plássinu þarf að liggja fyrir innan þriggja daga þar sem ekki er heimilt að pláss standi autt lengur en fimm virka daga.


